Greinar
-
Category: Fréttir
-
Published on Miðvikudagur, 14 desember 2011 09:24
-
Written by Inter ehf
-
Hits: 1114
Inter hefur í samráði við Vidacare, gefið beinmergsborvélar í alla sjúkrabíla landsins. 
Í nýjum evrópskum leiðbeiningum um endurlífgun í lok árs 2010 er ekki lengur mælt með því að gefa lyf um barkarennu. Ef ekki er hægt að setja upp æðalegg skal gefa lyf um beinmergsnál.
Með notkun beinmergsnálar er hægt að komast hratt og auðveldlega að æðakerfi sjúklings og gefa þannig lyf og vökva. Beinmergurinn er blóðríkur vefur og þaðan er fljót og greið leið inn í blóðrás líkamans fyrir lyf og vökva.
Uppsetning beinmergsnálar getur verið nauðsynleg hjá bráðveikum og slösuðum þar sem oft er erfitt að koma upp æðalegg. Það getur verið erfitt að finna æðar þegar sjúklingur er í losti, æðar verða minni og skreppa saman. Einungis tekur um 10 sek. að setja upp beinmergsnál. Það getur sparað mikilvægan tíma þar sem hver mínúta skiptir máli við aðhlynningu veikra og slasaðra.
Beinmergsborvélarnar frá Vidacare eru þægilegar í notkun og auðvelda uppsetningu beinmergsnála.
Sjúkraflutningaskólinn mun sjá um þjálfun á borana
Frekari upplýsingar um vidacare borana má finna á heimasíður Vidacare:
www.vidacare.com